Orkustöðvarnar 7
Orkustöðvarnar 7
Orkustöðvarnar 7
Orkustöðvarnar 7

Orkustöðvarnar 7

Verð 7.900 kr Á tilboði

Orkustöðvarnar 7

Í boxin eru sérstaklega valdir kristalar og orkusteinar, ásamt aukahlutum sem við mælum með til að setja gott andrúmsloft fyrir hugleiðsluna þína. Þau eru fullkomin fyrir byrjendur sem vilja hefja sitt andlega ferðalag, en einnig fyrir þá sem lengra eru komnir og vilja bæta við safnið sitt.

Í boxinu Orkustöðvarnar 7 má finna:

⍙  Rose Quartz – Kristall ástarinnar í öllum formum og myndum. Hann er hjartaopnandi og því tengdur hjartastöðinni. Þessi kröftugi kristall er sagður veita okkur andlega heilun og minnir okkar á að öll erum við partur af sömu heild. Hann er steinn skilyrðislausrar ástar og leyfir okkur að bæði gefa og þiggja ást ásamt því að heila hjartasár.
⍙  Raw Clear Quartz Point – Clear Quartz er oft kallaður höfðingi heilaranna (master healer) í kristalaheiminum. Hann er tenging þín við allar orkustöðvarnar og hjálpar til við að magna orku annarra kristalla og steina í kringum sig. Hann dregur einnig þá orku sem þú kallar að þér og fælir burtu þá orku sem þý ýtir frá þér.
 Selenite Tower - Selenite er afar hreinsandi og verndandi kristall, sem er nýttur til að hreinsa aðra steina og kristala . Hann er virkilega kraftmikill í hugleiðsluna þína og virkjar þinn innri frið.

  Sage - Sage styrkir innsæi þitt og hreinsar orkusviðið þitt af neikvæðri orku.


Í silkipoka eru kristalar og orkusteinar fyrir orkustöðvarnar þínar:

⍙ White Howlite
Krúnustöðin - hvít. Róandi – tenging þín við alheimsorkuna.
  Amethyst
 
Þriðja augað - fjólublá. Miðstöð innsæis og leiðir þig í átt að innri þekkingu. Tengir þig við þinn innri æðri mátt.
Sodalite 
Hálsstöðin - blá. Tjáning – bæði í tali og hlustun. Lærum að hafa stjórn á sjálfinu og egóinu. Hefur örvandi áhrif á hugann og stuðlar að auknu innsæi, athygli og hjálpar til við að mynda skoðanir.
⍙ Green Aventurine
Hjartastöðin - græn. Ást, fyrirgefning, samúð og kærleikur
⍙  Tiger Eye   
Solarplexus - gul. Uppspretta sjálfstjórnar, sjálfstrausts og viljastyrks. Hjálpar til við að fá skýrari sýn á hlutina, taka eftir smáatriðum og sjá réttu leiðina meðal annars í ákvarðanatöku.
⍙  Carnelian
Magastöðin - appelsínugul. Sköpunarkraftur, langanir og kynorkan.
⍙  Red Jasper
Rótarstöð - rauð. Jarðtenging og tengir þig við orku jarðarinnar.




Boxin eru 20 x20 x10cm

x