Um Unalome



Hugmyndin um Unalome fæddist þegar við fjölskyldan ferðuðumst um Balí í fæðingarorlofinu árið 2017 með 3ja mánaða son okkar og 10 ára dóttir. Eftir að hafa kolfallið fyrir því dásamlega og hæfileikaríka fólki sem býr á Balí og allri þeirri list sem býr í menningu þeirra, ákváðum við að deila því með þeim sem við gátum.

Við kynntumst tveim fjölskyldum sem hanna og búa til þær vörur sem við seljum. Hæfileikar þessir hafa erfst í kynslóðir og eru vörurnar unnar heima við þegar fjölskyldumeðlimir stórfjölskyldunnar koma saman og vinna hörðum höndum að þeim.
Við höfum haldið góðu sambandi við þessar fjölskyldur og myndað góðan vinskap við þær. Okkur þykir því mjög vænt um að hafa náð að aðstoða þær á þann hátt sem við nú gerum, á sama tíma og við deilum afurðum hæfileika þeirra með ykkur.

Á næstu mánuðum munu bætast við fleiri vörur og ber þar helst að nefna okkar eigin hönnun.

x