Skip to product information
1 of 40

unalome

Dagbók 2027 - Year Of Growth

Dagbók 2027 - Year Of Growth

Regular price 9,500 ISK
Regular price Sale price 9,500 ISK
Sale Væntanleg
Litur

2027 Year of Growth ✧

Fyrir ljósberana, fiðrildin, álfana, nornirnar, draumórafólkið og öll þau sem trúa á töfra lífsins. Fyrir þau sem fylgja tunglinu, hlusta á innsæið, safna litlum augnablikum og þrá að kafa dýpra inn í sjálf sig.
Fyrir þau sem vilja vaxa, blómstra og leyfa lífinu að koma sér á óvart.

2027 Year of Growth er dagbók sem býður þér að hægja á þér, tengjast sjálfri þér og skapa töfrandi rými fyrir eigin vöxt á komandi ári.

Hún er innblásin af núvitund, stjörnuspeki, þakklæti, ásetningi, sjálfskoðun og sköpunarkrafti – og þeirri fallegu hugmynd að við séum öll síbreytilegar orkuverur á okkar eigin ferðalagi.

Þetta er þykk og vegleg dagbók með nægu rými fyrir hugsanir, drauma, hugleiðingar og litlu augnablikin sem gera lífið að því sem það er. Hún er bæði fallegur félagi og praktískt verkfæri, hvort sem hún fær sinn fasta stað á náttborðinu eða fylgir þér hvert sem ævintýrin leiða þig.

Innan hennar finnur þú meðal annars tunglritual fyrir nýtt og fullt tungl, habit tracker, daglegar íhuganir, vikuleg og mánaðarlegt rými til sjálfsskoðunar og ásetnings, ásamt ýmsu öðru sem hjálpar þér að tengjast sjálfri þér og ferðalaginu þínu.

Hugsaðu um hana sem litla töfrabók, skipulag, hugleiðsludagbók og sjálfsræktarfélaga – allt saman í einni heild.

Ég vona að 2027 Year of Growth verði þinn litli griðastaður yfir árið. Staður þar sem þú getur látið draumana vaxa, fagnað litlu sigrunum, sleppt takinu á því sem þjónar þér ekki lengur og minnt þig á hversu fallegt það er að vera á lífi.

Megi árið þitt fyllast af gleði, ást, ævintýrum, þakklæti, blissi, heilun, töfrum og allri þeirri fegurð sem hjarta þitt þráir. ✧


✦ Innan dagbókarinnar finnur þú:

✧ Tungldagatal til að fylgja takti tunglsins yfir árið
✧ Stjörnuspekiupplýsingar fyrir hvern mánuð
✧ Ritual fyrir nýtt og fullt tungl
✧ Habit tracker til að hlúa að nýjum venjum
✧ Pláss fyrir sjálfsskoðun á afmælisdaginn þinn
✧ Hugmyndir að ritualum fyrir sjálfsumhyggju
✧ Ein heil vika á hverri opnu
✧ Rými til að skrásetja Oracle/Tarot spilið sem þú dróst
✧ Rými til að líta inn á við í lok hverrar viku og mánaðar
✧ Pláss til að setja ásetning fyrir vikuna og mánuðinn
✧ Vikulegar affirmations til að næra hugann og hjartað
✧ Mánaðardagatal til að halda utan um allt það sem lífið færir þér


✧ Smá praktískir töfrar

  • Stærð: A5 (210 × 148 mm)
  • Fjöldi síðna: 120 blaðsíður
  • Pappír: Hentar fyrir bæði kúlupenna og gelpenna

Falleg blanda af töfrum og tilgangi – tilbúin að fyllast af þínum eigin orðum, draumum, ásetningi og litlu brotum úr lífinu.

View full details