Finndu ljósið þitt og virkjaðu þinn innri kraft 🪶
Velkomin í mjúkt & öruggt rými þar sem þú mátt mæta sjálfri þér -nákvæmlega eins og þú ert ✨

Ég býð þér að koma í 1:1 tíma í mjúku rými, þar sem þú færð að mæta nákvæmlega eins og þú ert.
Rýmið er skapað fyrir konur sem hafa tapað ljósinu sínu, kraftinum sínum eða sínum innri kraft og þrá að finna tenginguna við sjálfa sig og sitt eigið ljós.
Undanfarin ár hafa komið til mín konur sem ég hef fengið að leiðbeina - konur sem vilja finna aftur ljósið sitt, kraftinn sinn og setjast dýpra í feminísku orkuna sína.
Það hefur kallað á mig sterkt að vera til staðar fyrir fleiri konur á dýpri hátt, með meiri þekkingu og nærveru, fyrir konur sem hafa týnt þessu vegna þeirra verkefna sem lífið kom með
Ég þekki það sjálf, eftir að hafa farið í gegnum lífið í doða og myrkri, að reynt að fóta mig í lífinu með mikla og flókna áfallasögu og greinast síðan með krabbamein 36 ára gömul.
En hægt og rólega fann ég bæði ljósið mitt og kraftinn minn og með því lærði á hver ég sjálf er.
Með þessari vinnu hefur þessi köllun orðið meiri og sterkari.
Með því að sameina þekkingu mína úr námi mínu í Compassion Focused Therapy og félagsráðgjöf, ásamt minni eigin reynslu og öll þau verkfæri sem ég kynnst og nýtt mèr sjálf á minni andlegu vegferð, ákvað ég að opna fyrir rými og bjóða upp á mína nærveru fyrir konur að finna ljósið sitt, kraftinn sinn og tengingu við sjálfa sig aftur.

Rýmið er fyrir konur sem til dæmis:
🌸 eru að leggja af stað í sína andlegu vegferð
🌸 hafa týnt röddinni sinni, ljósinu sínu og sínum innri kraft
🌸 þrá að vakna, tengjast sjálfri sér upp á nýtt og setjast betur í sína feminísku orku
🌸 langar að tengjast alheimsorkunni og kveikja á sinni dýpsta kraftu kynorku sinnar
🌸 bera með sér skömm sem er ekki þeirra að bera
🌸 upplifa aftengingu og tilfinningadoða við sál og líkama
🌸eru að finna fyrir einkennum breytingarskeiðs, hormónaójafnvægis eða breytingar á sér og líkama sínum sem þær eru að reyna að elska
Ég vinn út frá samtali, hlustun, djúpri speglun, skilning og mýkt.
Rýmið er byggt á mildi, fagmennsku og mjúkri nærveru - og þar færð þú að mæta nákvæmlega eins og þú ert og vera nákvæmleg sú sem þú vilt vera.
Við fáum okkur mjúkan bolla með heilugu kakói, lesum í spil og skoðum hvaða skilaboð alheimurinn hefur til þín og finnum kraftinn sem liggur innra með þér og fáum hann fram
🪶 Hver tími: 60 mínútur
🪶 Verð: 11.111 kr
🪶 Staðsetning: Unalome, Rauðarársstígur 1 eða Zoom
Ef þú finnur köllun til að mæta þá er rýmið mitt opið fyrir þig ❤️