Velkomin í þitt rými - þar sem þú mátt mæta sjálfu þér, nákvæmlega eins og þú ert ✨

Ég býð þér að koma í einkatíma tíma til mín, þar sem þú færð að mæta nákvæmlega eins og þú ert.
Rýmið er skapað fyrir þau sem hafa tapað ljósinu sínu, orkunni sinni eða sínum innri kraft og þrá að finna tenginguna við sjálfa sig og finna sína eigin leið.
Undanfarin ár hafa komið til mín einstaklingar sem ég hef fengið að leiðbeina - fólk sem vilja finna aftur ljósið sitt, kraftinn sinn, orkuna sína, setjast dýpra í feminísku/masculine orkuna eða bara standa með sínum innra eldi og finna
“ Að mæta til Lindu var það besta sem ég gat gert til að toppa sjálfsvinnuna mína og færa hana á upp á þann stað sem ég þurfti með því að treysta henni alfarið og sleppa tökum. Hún gaf sér tíma til að útskýra allt og ræða við mig það sem ég þurfti að til að treysta mér sjálfri og þessu ferðalagi. Get ekki mælt meira með henni og hennar dásemdar orku og innsæi fyrir alla þá sem vilja verða betri í sjálfri sér, sleppa tökum á gömlum hlutum sem þjóna ekki lengur tilgangi og eflast í þeim þáttum sem þau raunverulegalega vilja láta skína út á við. Því við eigum það öll skilið að þora sýna okkar sanna ekta sjálf (e. true authentic self) og Linda getur hjálpað þér ef þú leyfir henni ...
Linda á risa stóran þátt í því hvar ég stend og er sem manneska í dag og fyrir það verð ég henni ævinlega þakklát. “ - 42 ára kona.
Það hefur kallað mikið á mig að vera til staðar fyrir fleiri á dýpri hátt, með meiri þekkingu og nærveru, fyrir þau sem lenda hjá mèr og finna tengingu við það sem èg hef.
Ég þekki það sjálf, eftir að hafa farið í gegnum lífið í doða og myrkri, reynt að fóta mig í lífinu með mikla og flókna áfallasögu og greinast síðan með krabbamein 36 ára gömul.
En hægt og rólega fann ég bæði ljósið mitt og kraftinn minn og með því lærði á hver ég sjálf er.
Með þessari vinnu hefur þessi köllun orðið meiri og sterkari.
“ Ég er 54 ára karlmaður. Ég hef verið í strögli andlega í langan tíma og hef verið hjá nokkrum sálfræðingum síðustu ár sem hafa verið ágætir flestir en framfarirnar verið takmarkaðar.
Þar er öðruvísi að koma til Lindu. Ég fann strax hvað ég var velkominn í andlega og líkamlega í þægilegt umhverfi og að þarna yrði ég ekki dæmdur eða efast um tilfinningar mínar.
Hjá Lindu upplifði ég strax að ég gæti slakað á og verið ég sjálfur 100%, allar tilfinningar velkomnar og engin þörf fyrir að setja upp grímu eða reyna að vera einhver annar en ég er.
Mér fannst ótrúlega auðvelt að opna mig og tala um alla hluti, góða og slæma. Linda er með öðruvísi nálganir á hlutina, hjálpar manni að sjá þá frá öðru sjónarhorni með mýkt, samúð og kærleik.
Ég er á umtalsvert betri stað í lífinu eftir tímana hjá Lindu og mæli svo innilega með henni. “
Með því að sameina þekkingu mína úr námi mínu í Compassion Focused Therapy og félagsráðgjöf, ásamt minni eigin reynslu og öll þau verkfæri sem ég kynnst og nýtt mèr sjálf á minni andlegu vegferð, ákvað ég að opna fyrir rými og bjóða upp á mína nærveru fyrir aðra

Ég vinn út frá samtali, hlustun, djúpri speglun, skilning og mýkt.
Rýmið er byggt á mildi, fagmennsku og mjúkri nærveru - og þar færð þú að mæta nákvæmlega eins og þú ert og vera nákvæmleg það sem þú vilt vera.
Við fáum okkur mjúkann bolla með heilögu kakói, lesum í spil og skoðum hvaða skilaboð alheimurinn hefur til þín og finnum kraftinn sem liggur innra með þér og fáum hann fram
🪶 Hver tími: 60 mínútur
🪶 Verð: 13.000
🪶 Staðsetning: Dysjar, 210 Garðabær eða á Zoom
Ef þú finnur köllun til að mæta þá er rýmið mitt opið fyrir þig ❤️